15.04.1942
Neðri deild: 35. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í B-deild Alþingistíðinda. (1761)

37. mál, byggingar og landnámssjóður

*Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Við 2. umr. þessa máls lagði hv. þm. Seyðf. fram brtt. við 2. gr. (þskj. 138), um að fella niður næstsíðustu málsgr. — grein, sem fjallar um sérstakar styrkveitingar, ef um mikið tjón er að ræða. Það varð að samkomulagi, að hv. þm. tók till. aftur til 3. umr., en landbn. ætlaði að athuga hana nánar. Síðan hafa verið 2–3 fundir í n., en hv. þm. Seyðf. hefur ekki getað mætt. Meiri hl. landbn. hefur rætt málið sín á milli, en ekki séð ástæðu til, að breyt. yrðu gerðar í þessu efni.