11.05.1942
Efri deild: 54. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (1815)
43. mál, húsaleiga
*Frsm. (Magnús Gíslason):
Herra forseti Ég tel ekki ástæðu til að fara að þrátta við hv. 2. þm. S.- M., enda hefur hæstv. fjmrh. tekið af mér ómakið að svara því helzta. Ég hef aldrei neitað því, að þessi l. gætu komið illa við marga húseigendur, en það kemur fyrir í mörgum öðrum tilfellum en þessum og ólíkum. Húsaleigunefnd gæti gefið mjög góðar upplýsingar um það. Í þessu dæmi fór salan ekki fram fyrr en l. voru gengin í gildi, svo að kaupandinn mátti vita, að hverju hann gekk og að hann gat ekki treyst því að losna við þá leigjendur sem í húsinu sátu. Hann hefur því ekki þá afsökun sem margir aðrir, sem í svipuðum vandræðum hafa lent. Ég get ekki séð, að rétt sé að samþ. brtt. hv. 2. þm. S.-M. Í mörgum smærri kaupstöðunum og þorpum eru húsnæðisvandræðin mjög mikil, að því er vitað verður. Engin leið er að gera víðtækar breyt. á l., að svo lítt athuguðu máli, og almenningsheill krefst þess, að þau séu í gildi enn um stund.