16.05.1942
Efri deild: 59. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í B-deild Alþingistíðinda. (1886)

15. mál, málflytjendur

Þorsteinn Þorsteinsson:

Þegar ég flutti þessa brtt., var það vegna þess, að ég vildi, að enginn flokkur þessara manna hefði meiri rétt en aðrir. Það má deila um það, hve heimildin á að ná langt. Hún var þegar orðin svo víðtæk, að ekki var við bætandi.

Ég hef þegar gert grein fyrir till. minni, en mér finnst till. hv. þm. Str. stefna í sömu átt, og mun ég greiða henni atkvæði.