19.05.1942
Efri deild: 61. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (2031)
20. mál, framkvæmdasjóður ríkisins
Frsm. meiri hl. (Bernharð Stefánsson):
Samkv. skilningi hv. 2. landsk. þm. er till. hans meinlaus, en það er engin trygging fyrir því, að svo yrði farið að sem hann gerir ráð fyrir. Ég skil frv. um framkvæmdasjóð svo, að greiðslur úr honum þurfi ekki að koma í fjárl. Ég tel því engar sannanir og tæplega líkur fyrir því, að það, sem úr framkvæmdasjóði yrði tekið í þessu skyni, yrði aukið framlag við það, sem ella mundi. Hvers vegna ber hv. þm. á ekki fram till. um, að um framlag til byggingar verkamannabústaða skuli fara eftir l. um verkamannabústaði?
Hv. 10. landsk. þarf ég litlu að svara, enda sannaði ræða hans, að það var af metingi fyrir hönd kapstaðanna, að hann vill setja inn ákvæðið um verkamannabústaði, enda var ekki till. hans við 2. umr. um verkamannabústaði.
Ég hélt nú, að búskapur í sveit væri atvinnuvegur, en það getur ekki talizt atvinnuvegur að reisa verkamannabústaði. Hins vegar get ég fallizt á, eins og ég er margbúinn að taka fram, að heimilað sé að verja fé úr framkvæmdasjóði til verkamannabústaða.