05.05.1942
Neðri deild: 51. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (2044)

53. mál, lestrarfélög og kennslukvikmyndir

Gísli Sveinsson:

Með því að hv. form. menntmn. er ekki hér viðstaddur, vildi ég leyfa mér að gefa þær upplýsingar, að þetta mál var sent til fræðslumálastjóra, og er hans umsögn á þessum dögum alveg nýkomin, og án þess að ég geti ákveðið, hvenær n. heldur fund, býst ég við, að það verði mjög bráðlega og að hún skili þá áliti í málinu.