11.05.1942
Neðri deild: 55. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)
95. mál, styrkur til Íslendinga vestan hafs til náms í íslenzkum fræðum í Háskóla Íslands
*Bjarni Ásgeirsson:
Ég þakka menntnn. afgreiðslu þessa máls, þótt hún hafi gengið fremur seint. Ég sé ekkert beinlínis á móti þeim breyt., er hún vill gera. Um breyt. á l. gr. sé ég ekki, að það skipti miklu máli, þótt hér sé aðeins um heimild, en ekki skyldu að ræða. Einnig get ég fallizt á breyt. við 2. gr., því að vitanlega er það ekki meiningin, að styrkveitingin yrði svo teygjanleg sem möguleikar væru annars fyrir.
Brtt. við 3. gr. tel ég hæpnasta, því að 5 ar geta talizt venjulegur námstími, og auk þess kemur hér til greina, að eitthvað kynni það að geta tafið fyrir námsmönnum, að þeir væru ekki jafnleiknir í íslenzkunni eins og þeir landar, er hér eru bornir og barnfæddir. Ég geri þetta þó ekki að kappsmáli.