20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (2141)
56. mál, sala Hólms í Seltjarnarneshreppi
*Frsm. (Jóhann G. Möller):
Þetta frv. er hingað komið frá Ed. Ed. féllst svo að segja einróma á það, og um það munu engar deilur hafa staðið. Allshn. þessarar d. leggur til, að það verði samþ., þó með þeirri breyt., að 2. falli niður, því að n. sér enga nauðsyn til, að hún standi í l. Býst ég þó við, að n. standi ekki fast á henni, því að ef hún verður samþ., þá þarf málið að fara aftur til Ed. Ég vil því mælast til þess við hæstv. forseta, að hann hraði málinu sem mest í þessari d., ef það þarf að fara aftur til Ed.