20.05.1942
Efri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (2348)

136. mál, tollskrá o.fl.

Sigurjón Á. Ólafsson:

Herra forseti ! Um leið og þetta mál fer væntanlega til hv. fjhn., vildi ég leyfa mér að spyrja, hvað liði í n. afgreiðslu frv., sem við 10. landsk. (ErlÞ) bárum fram um svipað efni og þó fyllra og var vísað til n. 7. apríl s.l. Mér þykir það hafa tafizt þar nokkuð lengi.