19.05.1942
Efri deild: 61. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (2464)

38. mál, stjórnarskipunarlög

*Forsrh. (Ólafur Thors):

Þetta mál er komið frá Nd. og hefur verið mikið rætt þar og verður auk þess mjög mikið rætt við þær vantraustsumr., sem hefjast eiga í kvöld. Enn fremur geri ég ráð fyrir, að örlög þess séu ráðin, og tel því ekki nauðsyn á því, að málinu verði fylgt úr hlaði af hendi stuðningsmanna þess með langri ræðu við þessa umr. Ég leyfi mér að leggja til, að að lokinni umr. verði kosin sérstök stjskrn. eins og í hv. Nd., og verði hún skipuð 5 mönnum.