21.05.1942
Efri deild: 63. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í B-deild Alþingistíðinda. (2481)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurjón Á. Ólafsson:

Það er aðeins stutt svar til hv. þm. S.-Þ og hv. þm. Str. Hv. þm. S.-Þ. sagði það fleipur, að nokkuð líkt þessu máli hefði komið fram árið 1933. Ég sagði ekki, að málið hefði verið rætt á Alþ. eða borin fram till. um það, en ég býst ekki við, að hann geti neitað, að það hafi þá verið rætt innan Framsfl. og í stjskrn., þótt það væri ekki borið fram á þinginu. Hv. þm. Str. sagði, að Alþfl. hefði borið mál þetta fram, án þess að hann byggist við, að það næði fram að ganga. Ég mótmæli því eindregið og eins því, að Alþýðublaðið hafi sýnt nokkur óheilindi í því.