06.05.1942
Efri deild: 50. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (2506)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég get náttúrlega ekki þakkað hæstv. ráðh. fyrir svarið, en ég veit ekki betur en slíkar fyrirspurnir sem þessi hafi oft komið hér fram á Alþingi utan dagskrár. Að minni hyggju er því alveg formlega spurt, en ef hér er um eitthvert leyndarmál að ræða, sem ekki má segja frá í sölum Alþingis, þá verður náttúrlega að spyrjast fyrir um það á öðrum vettvangi.