07.05.1942
Neðri deild: 53. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (2513)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Ég hef ekki lesið þessa frásögn í Tímanum og get ekki að svo stöddu gefið nánari upplýsingar um þetta mál. Hitt mun rétt vera, að samningar um þetta hafa verið gerðir um ráðningu verkamanna eitthvað með þeim hætti, að þær verði gerðar fyrir milligöngu vinnumiðlunarskrifstofu.