30.04.1942
Sameinað þing: 10. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (2609)

117. mál, Kollabúðarheiði

Bergur Jónsson:

Það er rétt, sem hv. þm. Ísaf. gat um, að ég hafi borið fram brtt. um að ljúka vegi yfir Siglufjarðarskarð. Ég fellst á það, sem hv. þm. sagði um ástæðuna fyrir þessu máli, og ég hef síður en svo ástæðu til að mótmæla þessari vegagerð yfir Kollabúðarheiði.