04.05.1942
Efri deild: 48. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (564)

2. mál, dómnefnd í kaupgjalds- og verðlagsmálum

Erlendur Þorsteinsson:

Herra forseti! Með skírskotun til þess, sem hæstv. forseti hefur nú sagt út af fyrirspurn hv. 1. landsk. þm., mun ég einnig geyma mér að tala um málið þar til við 2. umr. Það eru nokkur atriði, sem ég vildi beina sérstaklega til hæstv. viðskmrh., sem hafði framsögu hér í þessu máli, en ég tel þýðingarlaust að bera þau fram nú, þar sem hann er ekki viðstaddur, en mun koma með þau við 2. umr.