20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (579)

115. mál, barnakennarar og laun þeirra

Gísli Sveinsson:

Eins og ég gat um við 2. umr. þessa máls, taldi ég, að frv. ætti ekki að ná fram að ganga í því formi, sem það hefur, og lagði því til. að því væri vísað til ríkisstj. En með því að sýnt er, að málið nær ekki fram að ganga, þó að það fari út úr þessari d., vil ég ekki hindra gang þess hér og lýsi hér með yfir því. að ég tek till. mína aftur.