20.05.1942
Neðri deild: 62. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í C-deild Alþingistíðinda. (684)

137. mál, hreppamörk Borgar- og Stafholtstungnahreppa o.fl.

*Frsm. (Bergur Jónsson):

Ég vil benda þessum hv. þm. á, að það er ekki gott að komast hjá að afgreiða mál, sem menn eru ósammála um. Slíkt hefur oft komið fyrir hér á hv. Alþ. um lík mál og það, er hér um ræðir. Sýslunefnd Mýrasýslu hefur samþ. þetta með öllum atkv. gegn 1, og er þess vegna ekki nema eðlilegt, að verða við þessari kröfu, því að það er nokkuð ólíklegt, að sýslunefndin sé að leggjast á eina sveit, án þess að hafa nokkuð til síns máls.