08.04.1942
Efri deild: 28. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í C-deild Alþingistíðinda. (733)
57. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands
Frsm. (Magnús Jónsson):
Það þarf ekki miklar umr. um þetta mál. Ef fleiri hv. þm. en hv. 1. þm. N.-M. eru á móti því, er einfaldast að greiða atkv. gegn því. Hann sagði, að skilyrðið um ókeypis far handa 60 mönnum til og frá landinu, væri nú gagnslaust orðið. Ég vil taka það fram, að ég hef aldrei heyrt það fyrr, að þessir fáu ókeypis farmiðar væru greiðsla Eimskipafélagsins fyrir skattfríðindi þau, sem það hefur notið. Hins vegar þótti það rétt á sínum tíma, að úr því að félagið naut þessara fríðinda, að það léti af Lendi þessa farmiða, einungis sem greiða. Hitt hef ég aldrei heyrt áður, að þessir ókeypis farmiðar væru skilyrði fyrir ívilnun um skatt. Skattfrelsi handa Eimskipafélaginu byggist á því, að þetta fyrirtæki er mjög nærri því að vera ríkisfyrirtæki, þó að það sé rekið í hlutafélagsformi. Er það því eðlilegt, að það njóti svipaðra kjara og ríkisfyrirtæki. Eimskipafélagið vinnur svo mikið fyrir þjóðfélagið og tekur að sér svo mörg störf í þágu alþjóðar, að það væri ósanngjarnt að leggja á það gjöld sem önnur fyrirtæki. Enda er félaginu sett skilyrði af Alþingis hálfu um arðgreiðslu. Það má ekki greiða nema mjög óverulegan arð til hluthafanna. En svo veit ég ekki betur en skattgreiðslur ýmissa félaga annarra heyri undir ákveðin sérstök lagafyrirmæli. Má þar t.d. nefna samvinnufélögin og útgerðarfélög, skv. frv. til. l., sem nú er flutt hér á Alþingi. En Eimskipafélagið er sérstæðasta fyrirtæki í landinu og alls ekki hægt að jafna því við önnur einkafyrirtæki.
Ég hafði sízt búizt við andstöðu við þetta frv. á þeim tímum, sem nú eru. Allir vita, að Eimskip fyrir þjóðina beinum voða. Í síðustu styrjöld var litið á það sem sérstaka guðs forsjón, að Eimskipafélagið var þá stofnað og gat annazt siglingar að og frá landinu. Þetta vita allir, og skal ég ekki orðlengja það. En spurningu hv. 1. þm. N.-M. um, hvað sé átt við með undanþágunni frá skattgreiðslu 1941–'42, vil ég ekki svara. Ég veit ekki, hvað er praktiserað í þessu efni, og er það skattayfirvaldanna að skera úr því, enda er þetta atriði alveg ópraktískt á meðan félagið nýtur þessara réttinda ár frá ári. það verður fyrst aktuelt, þegar að því kemur, að þessi fríðindi verði afnumin.
Þessi hv. þm. var að tala um tekjur Eimskipafél. af leiguskipum. Það er ekkert við það að athuga, þótt félagið taki skip á leigu. Það getur verið fullkomlega réttmætt og rekstri þess viðkomandi. Öðru máli væri að gegna, ef félagið tæki að reka togara, enda býst ég við, að Alþingi mundi þá taka til sinna ráða.
Ég vil óska eftir því, að Eimskipafél. verði sem allra auðugast. Það er mikil trygging fyrir þjóðina. Þetta svo kallaða skattfrelsi er bara í orði. við getum sagt, að ríkissjóður geymi þetta fé hjá Eimskip þar til síðar. Það er alveg sama, hvort Eimskipafél. væri krafið um t. d. 1 milljón í skatt, en svo síðar væri það fé greitt til félagsins sem styrkur. Það væri þá helzt Reykjavíkurbær, sem ætti að kvarta undan þessu skattfrelsi fél. En ég hef engar raddir heyrt í þá átt, og býst ekki við, að til þess komi. Mér þykir leitt, ef hv. þm. geta ekki fylgt frv. á þessum tímum, en ég vil þó endurtaka þá ósk mína, að þessi hv. d. greiði fyrir þessu máli.