23.03.1942
Efri deild: 21. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (795)
25. mál, íþróttakennaraskóli Íslands
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Það hafa komið hér fram sérstök ummæli um það, að þetta frv. hefði átt að vera undirbúið og flutt á annan hátt en verið hefur. Vil ég taka það fram, að íþróttafulltrúinn hefur rætt tvívegis um þetta mál við ráðuneytið, og hann hafði sýnt rn. í aðalatriðum þau drög að frv., sem hann hafði samið um málið, og spurt rn., hvort það hefði nokkuð á móti því, að hann fengi þetta mál flutt á Alþ., og ég lýsti yfir því við hann, að ég væri því algerlega samþykkur og mundi ljá málinu fylgi mitt á Alþ. eftir því sem ég gæti, því að ég teldi málið nauðsynlegt. En eins og við vitum, gilda ekki þær reglur í okkar stjórnarskrá og hafa ekki heldur gilt, samkv, þeim reglum, sem myndazt hafa, að ríkisstj. flytji öll þau mál sjálf, þó að stór séu, hér á Alþ., sem hún þó telur nauðsynleg og er fylgjandi. Meðan sú regla er ekki upp tekin, sé ég ekki annað en slík afgreiðsla, sem er á þessu máli, geti verið í alla staði eðlileg. Og mestu máli skiptir það um þetta mál sem annað, hvort við viljum afgreiða það og vera málinu efnislega samþykkir, en ekki, hvort ríkisstj. flytur frv. eða það er þingmannafrv. Ég er algerlega fylgjandi þessu frv. og álít þessa löggjöf nauðsynlega. Og fyrir því eru rök í grg., og má færa fleiri rök fyrir því.
Ég ætla ekki að ræða um það, hvort þessi skóli eigi að vera í Reykjavík eða utan Reykjavíkur. En það er skoðun mín, að hann eigi einmitt að vera utan Reykjavíkur og þá á slíkum stað sem þeim, er til er tekinn í frv.
Viðvíkjandi frv. í heild vil ég segja það, að með þeim breyt., sem gerðar hafa verið á því í n., ef samþ. verða, þá hefur það tekið þeim umbótum, að ég tel mjög aðgengilegt að samþ. það eins og það þá lægi fyrir. Í brtt. er nánar en í frv. tiltekið verksvið skólans. Sömuleiðis álít ég eðlilegra, að 7. gr. sé breytt þannig, sem gert er ráð fyrir í brtt., þar sem um ríkisskóla er að ræða, því að þá hefur ríkið meiri hl. í skólanefndinni, með því að íþróttafulltrúi ríkisins á þar sæti og maður, sem kennslumálarn. tilnefnir. En hins vegar er sá staður, þar sem skólanum er ætlað að vera, eign héraðsskólans á Laugarvatni, og þess vegna er eðlilegt, að skólastjórinn þar hafi þarna íhlutun. Og mér finnst, eins og þessu er fyrir komið í áliti n., að vel. sé fyrir stjórn skólans séð.
Það er vitanlega hægt að deila um það, og sumir hafa bent á það, hvort 3 kennarar ættu að vera við skólann, þar sem ekki væru fleiri nemendur, og finnst sumum það kannske nokkuð mikið. En þess ber að gæta, að þetta, að hafa kennara, er aðeins heimild. En að öðru leyti, ef á að fjölga kennurum í þrjá, þá þarf til þess fjárveitingu héðan frá Alþ. Svo að ég get ekki betur séð en að vel sé fyrir málinu séð eins og það liggur fyrir að brtt. samþ.