17.04.1942
Efri deild: 35. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (831)

25. mál, íþróttakennaraskóli Íslands

*Frsm. (Jónas Jónsson):

Við 2. umr. í gær tókum við hv. þm. Vestm. brtt. okkar til baka, aðallega af því, að fram kom gagnrýni frá hæstv. forsrh. á hana, en við hins vegar töldum hana réttmæta. Höfum við nú komið okkur saman um að taka hana alveg til baka, en ef einhver tæki hana upp, mundum við þó greiða atkv. með henni.