10.03.1942
Neðri deild: 16. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í D-deild Alþingistíðinda. (870)
28. mál, ársskýrslur síldarverksmiðja ríkisins
*Finnur Jónsson:
Hæstv. atvmrh. vildi halda því fram, að ég hefði orðið tvísaga í þessu máli. Hann sagði, að í fyrri ræðu minni hefði ég sagt, að um þetta væru skiptar skoðanir innan verksmiðjustj., en í síðari ræðunni, að verksmiðjustj. hefði verið einhuga á móti.
Þetta er ekki rétt hjá hæstv. ráðh. Ég skýrði frá því í fyrri ræðu minni, að þegar ég spurði formann síldarverksmiðjustj., hvort hann hefði nokkurn tíma verið aðspurður um þessa hluti, þá hefði hann sagt ráðh., að það mundu vera skiptar skoðanir um þetta mál innan verksmiðjustjórnarinnar. Ég skýrði þar frá því, hvað formaður verksmiðjustj. hefði sagt við ráðh., en ekki minni skoðun á afstöðu stjórnarinnar. Jafnframt skýrði ég frá og vitnaði til í seinni ræðu minni, að ég hefði í höndum einróma till. frá stjórn síldarverksmiðja ríkisins gegn því, að þessi verksmiðja yrði keypt. Og ég er búinn að afhenda hæstv. ráðh. afrit af bréfi því, sem ég fékk og á sínum tíma var sent til ríkisstj. Og ef hann vill nokkuð vita, þá getur hann séð, að stj. síldarverksmiðjanna var á árinu 1939 einróma gegn því, að þessi verksmiðja yrði keypt.
Ég sé ekki ástæðu til að vera neitt að eltast við það, sem hæstv. ráðh. sagði. Honum er það vel ljóst, að hann hefur frá Alþ. þannig heimild, að hann hefur ekki uppfyllt þau skilyrði, sem honum voru sett. Og honum er það líka ljóst, að allir slíkir baggar, sem bundnir eru á síldarverksmiðjur ríkisins, eru til þess að lækka síldarverðið til útvegsmanna og sjómanna.