11.08.1942
Efri deild: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (104)
7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Atvmrh. (Magnús Jónsson) :
Ég vildi aðeins benda hv. 6. þm. Reykv. (BrB) á það, að óvanalegt og varhugavert er að flýta stórmálum meir en að réttum þingsköpum, þegar afgreiðslan er nú ekki aðeins viss, heldur hægt að byrja á öllum ráðstöfunum, sem af samþykkt málsins leiðir, og er þetta dálítið annað en um mál eins og t. d. mat á gærum, sem síðast mála var afgreitt hér með skyndiaðferð. Ef þessi litla bið, sem um er að ræða, spillir öllum friði, hlýtur að minnka trú mín og flestra um, að afnám gerðardómsins í kaupgjaldsmálum beri árangur. Ef sú púðurtunna er undir, er ekki hægt að semja um frið og gagnar þá sízt að flýta sér. En þegar viðhorfið hefur skýrzt við umr. í nefnd og frv. fengið það útlit, sem l. fá í framtíðinni, kemur til mála að ræða um, að því verði flýtt. Ég vil enn segja það bæði við hv. 6. þm. Reykv. og hv. 9. landsk., að ég er undrandi, hvað þeir eru ákveðnir í að setja skuli nýja lögþvingun inn í frv. Brennt barn forðast ekki alltaf eldinn. Hitt er annað mál, hvað gera skal, ef það kemur í ljós, að samningar takist raunar milli atvinnurekenda og helztu verkalýðsfélaganna, en einhverjar eftirhreytur verði víða um land, sem ósamið sé um vegna þess, að eldri samningar fáist ekki endurskoðaðir, og getur þá Alþ. gripið inn, ef því sýnist, til að flýta fyrir jafnrétti með lögþvingun. Annan rétt á þvingun ekki á sér, bezt að þurfa hennar ekki. Vitaskuld er ég til viðtals við hv. þm. um málið, hverra rök sem þá verða ofan á, er við ræðum það í bróðerni.