04.09.1942
Sameinað þing: 14. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í D-deild Alþingistíðinda. (1073)

19. mál, raforkumál

Gísli Guðmundsson:

Ég er síður en svo á móti því, að rannsakaðir séu möguleikarnir fyrir þéttbýlismyndun í sveitunum, og tel nauðsyn á að gera það. En með tilliti til þess, sem hv. þm. V.-Húnv. sagði hér áðan, og skírskotun til þess segi ég nei.