04.09.1942
Sameinað þing: 14. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í D-deild Alþingistíðinda. (1082)

19. mál, raforkumál

Páll Zóphóníasson:

Þó að ég treysti ekki núverandi ríkisstjórn til þess að leysa af hendi neitt af því, sem í þessari þáltill. felst, vona ég, að hún verði svo stutt við völd, að þáltill. verði samt sem áður framkvæmd, og segi því já.