19.08.1942
Efri deild: 10. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (121)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Forseti (JJós) . Með því að nauðsyn ber til, að þessari umr. verði lokið í dag, sé ég mér ekki annað fært en leita samþykkis hv. deildar til að takmarka ræðutíma, það sem eftir er umr. Ég leyfi mér að stinga upp á 10 mín. og skoða það samþ. án atkvgr., ef enginn mælir því í gegn. Hv. 1. þm. Eyf. hefur óskað að gera aths. út af þingsköpum, og tekur hann til máls.