02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í D-deild Alþingistíðinda. (1232)

31. mál, flutningastyrkur til hafnleysishéraða

Forseti (GSv) :

Umr. eru um of á við og dreif um atriði, sem ekki koma málinu við. Ég vil alvarlega mælast til þess við hv. þm., sem vilja leggja orð í belg, að vera stuttorðir. Það hefur aðeins einn hv. þm. kvatt sér hljóðs, og ég vona, að hann verði stuttorður.