03.09.1942
Sameinað þing: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í D-deild Alþingistíðinda. (1329)

53. mál, virkjun Fljótaár

Flm. (Garðar Þorsteinsson):

Ég skal ekki vera langorður, enda get ég vísað til grg. till. Það er nú upplýst, að Siglufjarðarkaupstaður er búinn að fá loforð fyrir vélasamstæðum í þessu skyni, en þarf að greiða þær vélar bráðlega og getur fengið lán, ef yfirlýst er af Alþ., að þessi ábyrgð fáist síðar. Ég vona, að hv. fjvn. komi með till. sínar í málinu fyrir þingslit.