04.08.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í B-deild Alþingistíðinda. (16)
Kosning til efri deildar
Forseti (GSv) :
Hv. þm. vitnar enn til þessarar gr. þingskapa. En ég tel ekki beinlínis rökrétt eða skylt að skilja gr. svo, að eingöngu beri að taka tillit til þess, hve flokkar eru sterkir á þingi, heldur, eins og venja er til, að fara beri eftir því, sem fram kemur við atkvgr. Ég efast ekki um það, að sá hv. þm., sem fjarstaddur er, sé löglega forfallaður, en það hefur nú samt komið fram í atkvgr., að 6. maður á C-lista hefur hærri atkvæðatölu en 7. maður á A-lista. Og ég tel rétt að halda sér að atkvgr. og telja þá réttkjörna, sem kosnir hafa verið, ef ekki getur orðið samkomulag um annað.