07.08.1942
Neðri deild: 3. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Sveinbjörn Högnason:

Ég vil aðeins taka undir það, að ekki tefur það málið, að það fari í nefnd og frsm. flokkanna geti við 2. umr. reifað það skýrt og skipulega, en hitt tefur, að neyða nú þegar til umræðna um það á við og dreif, svo að meðferðin geti öll orðið sem óskipulegust.