25.08.1942
Efri deild: 14. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (297)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Bernharð Stefánsson:

Mér kann að vera kunnugt um eitthvað af því, sem hæstv. forseti bar fram þessari seinkun til afsökunar. En honum ætti þá einnig að vera kunnugt um þau skrif, að það sé Framsfl. að kenna, að þetta mál fáist ekki afgreitt.