12.08.1942
Neðri deild: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (305)

28. mál, kosningar til Alþingis

Fjmrh. (Jakob Möller) :

Dómsmrh. hefur undirbúið frv. þetta, eins og það liggur fyrir. Eins og frv. ber með sér, eru aðeins teknar upp í það breyt., er óhjákvæmilega leiðir af breyt. þeim, er gerðar voru á stjskr. á síðasta þingi. Fleiri breyt. en þær, sem hér um ræðir, gátu að vísu komið til greina, en ráðuneytið vildi þó ekki fitja upp á þeim.

Ég tel sjálfsagt, að stjskrn. fái þetta frv. til athugunar, og legg ég því til og geri það að till. minni, að frv. verði vísað til þeirrar n. og 2. umr.