04.08.1942
Neðri deild: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (41)

Sætaskipun

Forseti (EmJ) :

Það hefur oft komið til orða áður að hluta ekki um sæti, en aldrei náðst um það fullt samkomulag, að ég ætla. Ef slíkt er eindregin ósk þm., má náttúrlega taka hana til athugunar. En annars er það svo, ef þm. koma sér saman, að þá er aldrei haft á móti því, þótt menn skipti um sæti á eftir.