07.09.1942
Efri deild: 25. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (456)
80. mál, stjórnarskipunarlög
Forseti (JJós) :
Ég vil aðeins út af ummælum hv. þm. S.-Þ. segja það, að mér þykir sómi þingsins mestur með því, að öllum sé gert jafnt undir höfði með það að fá að flytja mál sitt fyrir þjóðinni, og mundi ég ekki leggja til, að einum frekar en öðrum væri leyft að birta skoðanir sínar í útvarpinu. — Hv. frsm. tekur nú til máls.