18.08.1942
Neðri deild: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

51. mál, nýjar síldarverksmiðjur

Frsm. (Finnur Jónsson) :

Ég vildi f. h. sjútvn. mælast til þess, að þessu frv. verði nú vísað til 2. umr. Það munu koma fram brtt. við frv. við þá umr. Sjútvn. mun reyna að koma sér saman um þær brtt.

Ef þessi ósk mín verður samþ., um að málinu verði nú þegar vísað til 2. umr., mun ég geyma framsöguræðu mína þangað til við þá umr.