20.08.1942
Neðri deild: 10. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
51. mál, nýjar síldarverksmiðjur
Ásgeir Ásgeirsson:
Það kom fram hér í hv. d., að verksmiðjan á Flateyri sé ekki rekin í sumar vegna skorts á vinnuafli. Ég vil leiðrétta þetta. Verksmiðjustjórnin vildi setja verksmiðjuna af stað með fárra daga fyrirvara, en þannig er ekki hægt að reka verksmiðjur nú á þessum tímum, þegar fólk á einhvers úrkostar, og alls ekki hægt að búast við, að fólk sitji heima meiri hluta sumars til þess að bíða eftir því, að verksmiðjan verði starfrækt. Það á að ákveða það í byrjun síldveiðitímans, hvort verksmiðjan skuli starfrækt, því að öðruvísi er ekki hægt að reka verksmiðjur nema á eymdarárum, þegar fólk vantar atvinnu.
Verksmiðjustjórnin ætti að taka þetta til athugunar og tryggja sér fólk með fyrirvara, því að eins og nú árar, er ekki hægt að krafsa upp fólk á nokkrum dögum.