24.08.1942
Neðri deild: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í B-deild Alþingistíðinda. (520)

56. mál, sala Ólafsvíkur og Ytra-Bugs

Garðar Þorsteinsson:

Þar sem hv. frsm. er ekki viðstaddur, vil ég geta þess, að allshn. vill mæla með, að þetta frv. verði samþ., en hefur gert till. um eina breyt., nefnilega þá, að lönd þau, er Ólafsvíkurhreppur eignast í þessum kaupum, sé honum óheimilt að selja, en heimilt sé honum að leigja þau, og fari um leiguna samkv. reglugerð, er samþ. sé af ríkisstj. Þessi brtt. er í samræmi við löggjöf, sem hefur verið sett, þegar svipað hefur staðið á, og Alþ. hefur talið rétt að setja. Ég vil mæla með, að frv. verði samþ. með þessari breyt.