01.09.1942
Efri deild: 20. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í B-deild Alþingistíðinda. (597)
24. mál, raforkusjóður
Bernharð Stefánsson:
Ég hef skrifað undir nál. fjhn. með fyrirvara. Ég vildi ekki leggja stein í götu þessa máls og mæli með, að það nái samþykki eins og það er. Ég tel heppilegt, að þessir fémunir séu teknir til hliðar í því skyni, sem frv. ætlast til. En ég tel málið að ýmsu leyti ekki nógu vel undirbúið, og gildir fyrirvari minn um það. Ég tel, að till. til þál., sem flutt er í Sþ., þyrfti a. m. k. að fylgja, til þess að málið geti kallazt komið á sæmilegan rekspöl. Ég mun greiða atkv. með frv. En um brtt. á þskj. 178 verð ég að segja, að ég get ekki fylgt henni eins og hún er, hefði e. t. v. getað greitt henni atkv., ef hún hefði aðeins náð til smærri kaupstaðanna, miðað við íbúafjölda.
Ég get að mínu leyti tekið undir orð hv. þm. Dal., þó að ég vilji ekki binda mig um brtt., sem fram kynnu að koma fyrir 3. umr. og ég teldi til verulegra bóta. Ég tel nauðsyn, að málið gangi fram nú á þinginu, þótt það nái aðeins til nokkurs hluta þeirra aðgerða, sem þarf. Rannsókn þarf að gera á öllum raforkumálum landsmanna og leggja eins konar áætlun um það, hvernig þessum miklu fémunum, sem um ræðir, yrði bezt varið.