03.09.1942
Neðri deild: 20. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

24. mál, raforkusjóður

Forsrh. ( Ólafur Thors) :

Út af ummælum hv. 1. þm. N.-M. (PZ) vil ég lýsa yfir því f. h. stj., að ekki verður varið fé úr þessum sjóði, fyrr en Alþ. hefur sett nánari reglur um málið. Hv. þm. taldi það nægilegt til þess, að málið gæti gengið fram óbreytt. (PZ: Því treystir enginn.) Ég tel ekki miklu máli skipta, hvað þessi hv. þm. álítur, ef hv. 1. þm. S.-M. treystir því.