10.08.1942
Neðri deild: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í C-deild Alþingistíðinda. (710)
10. mál, laun embættismanna og annarra starfsmanna ríkisins
Stefán Jóh. Stefánsson:
Það er alveg sjálfsögð réttlætiskrafa, að launamenn ríkisins fái einhverjar bætur á laun sin, eins og nú er högum háttað í landinu. Fulltrúar Alþfl. í Ed. hafa borið fram frv., sem segja má, að sé í höfuðatriðum samhljóða þessu frv.
Eins og hv. frsm. þessa frv. tók fram, er það engum vafa bundið, að launakjör opinberra starfsmanna eru í fullkomnu ósamræmi við laun annarra stétt í landinu og þurfa því lagfæringar við. Alþfl. vill því taka frv. það, sem hér liggur fyrir, til vinsamlegrar athugunar og ná saman endum þessara mála sínu í hvorri d.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara að vekja neinar óþarfa deilur um þetta mál.