28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (757)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Bjarni Bjarnason:

Ég vil aðeins spyrja hæstv. forseta að því, hvernig á því standi, að ekki séu teknar á dagskrá till., sem fluttar eru af þm. Ég á tvær eða þrjár till. til þál., og þær hafa ekki komið á dagskrá tvo síðustu fundi. Mér þætti mjög gott, ef þessum þáltill. yrði hraðað.