28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í B-deild Alþingistíðinda. (758)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Eiríkur Einarsson:

Úr því að farið er að hreyfa þessum málum, þá vil ég minna hæstv. forseta á það, að dregizt hefur að taka á dagskrá eina till. til þál., sem ég er flm. að ásamt fleiri hv. þm. Þessi till. er mjög víðtæk, og standa margir hv. þm. að henni ásamt hæstv. forseta sjálfum, og vænti ég þess, að hann taki þetta til athugunar.