28.08.1942
Sameinað þing: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (813)

Þingfylgi ríkisstjórnarinnar

Jónas Jónsson:

Ég vil leyfa mér að lesa upp tilkynningu frá Framsfl., áður en gengið er til dagskrár:

„Út af því, sem fram kom af hálfu stuðningsflokka ríkisstj. í efri deild í gær og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, vill Framsfl. taka það fram, að afstaða hans til ríkisstjórnarinnar er hin sama og hún hefur verið undanfarið, og er flokkurinn því í andstöðu við núverandi ríkisstjórn.“