11.08.1942
Sameinað þing: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (886)

6. mál, erlendar fóðurvörur

Pétur Ottesen:

Út af því, að Búnaðarfélags Íslands er getið í þessari till., vil ég segja frá því, að áður en þessi till. kom fram, skrifaði stjórn Búnaðarfélagsins landbrh. um það, sem till. fjallar um, og fór fram á, að ríkisstj. veitti alla aðstoð, sem í hennar valdi stæði, til að greiða fyrir því, að hægt væri að flytja inn þær fóðurvörur, sem við þyrftum. Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram.