11.08.1942
Sameinað þing: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (890)

6. mál, erlendar fóðurvörur

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Ég vil spyrja hv. flm. þessarar till. til þál., hvort þeim finnist ekki réttara að vísa málinu til n., því að þar sem ríkisstj. hefur nú verið falið að gera ráðstafanir til þess að flytja inn fóðurvörur, þá tel ég miður farið, ef þetta mál verður eigi vel undirbúið.