25.08.1942
Sameinað þing: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (922)

63. mál, húsnæði handa alþingismönnum

Flm. (Bernharð Stefánsson) :

Ég vil aðeins leyfa mér að spyrjast fyrir um það hjá hæstv. forseta, hvort ekki sé nóg, að ein umr. verði höfð um málið, því að þótt ætla mætti í fljótu bragði, að þessi till. hafi kostnað í för með sér og ætti þess vegna að viðhafa tvær umr., er óvíst, að nokkur kostnaður leiði af þessu fram yfir það, sem nú er.