25.08.1942
Sameinað þing: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (929)

62. mál, verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir

Bjarni Ásgeirsson:

Ég vildi leyfa mér að vekja athygli hæstv. forseta á því, að ég hef borið fram ásamt fleiri hv. þm. till. til þál. um verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarvörur. Vildi ég mega óska þess, að hæstv. forseti taki þessa þáltill. okkar á dagskrá sem fyrst, með því að hér er um mjög þýðingarmikið og aðkallandi mál að ræða.