17.08.1942
Sameinað þing: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (952)

8. mál, úthlutun bifreiða

Helgi Jónasson:

Það kom mér mjög á óvart, að till. skyldi ekki koma á dagskrá í dag, ég hafði um það vilyrði forseta, að hún yrði ekki tafin, og vænti fastlega, að hún kæmi. Till. var borin fram í byrjun þings og tekin á dagskrá einu sinni. Ég fæ ekki skilið, hvaða heimildir það eru, sem heimta langa bið, þær ættu að vera fyrir hendi í bifreiðaeinkasölunni. Ég vona, að till. komi til umr. hið bráðasta, helzt á morgun.