17.08.1942
Sameinað þing: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (953)

8. mál, úthlutun bifreiða

Garðar Þorsteinsson:

Ég vil benda hv. 1. þm. Rang. á, að í fyrra flutti hann till. um þetta sama efni, og flokksmaður hans, form. allshn., Bergur Jónsson, þáv. þm. Barð., fékkst ekki til að afgreiða hana úr n. Þm. settist þá á málið, svo að hann þarf ekki að láta sér mjög óðslega núna.