11.08.1942
Efri deild: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (96)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Forseti (JJós) :

Ég skal geta þess út af þeim fyrirspurnum, sem hv. þm. Barð bar fram til atvmrh., að mér var ekki annað kunnugt en að hann vissi af þessum fundi og því máli, sem til umr. er, svo að hann hefur verið hindraður af einhverjum orsökum. Þar sem hann er ekki við, verður ekki hægt að greiða götu þessara fyrirspurna hv. þm. Barð. nema með því, að hann ræði um þær persónulega við atvmrh., þegar hann nær til hans.