25.01.1943
Neðri deild: 41. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (106)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
Eysteinn Jónsson:
Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir ýtarlegar upplýsingar til andsvara fyrirspurnum mínum. Ég vildi aðeins vekja athygli bæði stjórnarinnar og Alþ. á einu atriði. Hæstv. ráðh. gerði ráð fyrir, að tekjur samkv. l. um ráðstafanir gegn dýrtíðinni mundu nema 7 millj. og 300 þús. kr., þ.e.a.s. 5 millj. úr ríkissjóði og 2 millj. og 300 þús. kr., sem sérstaklega er aflað.
Hæstv. ráðh. hefur upplýst ýtarlega, hverju búið er að ráðstafa, bæði til þess að halda niðri dýrtíðinni og styðja framleiðsluna. En þá er spurningin, sem bæði ríkisstj. og Alþ. þurfa að gera sér grein fyrir, hve mikið af þessum greiðslum hefur verið innt af hendi samkv. heimild í dýrtíðarlögunum og hvað samkv. öðrum heimildum. Mér skildist hæstv. ráðh. telja þær greiðslur, sem nú þegar hafa farið fram til uppbótar á afurðir ársins 1941, og einnig greiðslur fyrir síldarmjöl á s.l. ári, inntar af hendi samkv. sérstakri þáltill., og því heimild dýrtíðarl. óviðkomandi að því leyti. Ég játa, að ég hef ekki athugað þetta svo gaumgæfilega, að ég geti sagt, hverjar skoðanir ég hef á þessu. En ég hafði þó fremur gert ráð fyrir því, að enda þótt Alþ. afgreiddi sérstaka þáltill. um að inna af hendi þessar greiðslur ársins 1941 og síldarmjölsgreiðslurnar, þá væri það hugsunin frá Alþ. hálfu, að slíkt kæmi undir þær heimildir, sem voru gefnar. Þetta hefur kannske ekki svo raunverulega þýðingu, en þó er það þannig, að ef þessi skilningur ræður, að allar þessar greiðslur séu óviðkomandi dýrtíðarl., þá eru ónotaðar af heimildum dýrtíðarl. á fimmtu millj. kr., þegar þær dýrtíðarráðstafanir hefjast, sem nú er verið að gera. En ef skilningur manna á þessum greiðslum verður sá, að þetta heyri undir tekjuöflun samkv. gömlu dýrtíðarl., — enda þótt sérstaklega sé skorað á ríkisstj. —, þá er nú í raun og veru fullnotuð heimild laganna.