07.01.1943
Neðri deild: 27. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (1206)

83. mál, skógrækt

Forseti (JJós):

Ég vil geta þess í sambandi við þetta mál, að brtt. er á leiðinni, og er hún í prentun. Mér hefur verið afhent vélritað uppkast að henni, og þar sem hún er flutt af hv. landbn. og virðist mjög einföld, sé ég ekki ástæðu til að láta það tefja fyrir málinu, að henni hefur ekki verið útbýtt meðal hv. dm. Brtt. hljóðar svo:

Við 1. gr. Fyrir orðin „enda liggi fyrir fjárveitinganefnd“ komi: enda liggi fyrir Alþingi.

Brtt. verður þá borin fram skrifl., og leita ég leyfis til afbrigða fyrir henni.